Stelpur stelpur stelpur... það er komið að þessu



Ég var að skoða veðurspána og svo virðist sem best verði að bruna bara sem lengst í austurátt sem fyrst, vorum að tala um það í gær að komast að minnsta kosti í Skaftafell á morgun

Set hérna inn "planið", ef plan má kalla, hahahahah
Dóra sækir Hrund kl.10, svo Helgu, svo Sólrúnu. Allar að vera reddí steddí freddí með tjöld viðruð, tónlist í i-podum og brosið álímt !!!

Brunum á Selfoss og kaupum þar grillmat í Krónunni eða eitthvað. Dóra og Sólrún koma með tjöld, Sólrún með fm sendi, Dóra með borðbúnað og félaga, Hrund með grill og gas. Athugið þó að ég hef aldrei grillað allig sjálf svo vatsját for jor her. hahahahhaha
Svo koma allir með dýnu, svefnpoka, hlý föt, góða skó, regnföt (látum sko ekki smá vætu skemma stuðið, hehe), stuttbuxur (já, ég er bjartsýn...), sunddót, öl, mat, myndavélar (við Helga verðum með ofurvélarnar svo búið ykkur undir að öskrað verði "MYNDASTOPP" öðru hvoru, hahahaha), tónlist og annað skemmtilegt sem okkur dettur í hug. Ég á þrjá útilegustóla, get tekið þá ef þið viljið

Stelpur... ég hef aðeins eitt að segja að lokum... ÓÓÓÓJÁÁÁÁ



Sjáumst eldsprækar og kátar í fyrramálið. Yfir,
Skrifistrymps